Innlent

Verðlaun veitt fyrir ýmis afrek

Helgi Hjörvar afhendir Lasse Thoresen tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs.  mynd / norden.org
Helgi Hjörvar afhendir Lasse Thoresen tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs. mynd / norden.org
Norðurlandaráð afhenti í gær verðlaun fyrir afrek á sviðum bókmennta, kvikmyndagerðar og tónlistar og í fyrsta sinn voru Norrænu náttúru- og umhverfisverðlaunin veitt.

Hin finnska Sofi Oksanen fékk bókmenntaverðlaunin fyrir bók sína Hreinsun, Lasse Thoresen fékk tónlistarverðlaunin og Danirnir Thomas Vinterberg, Tobias Lindholm og Morten Kaufmann fengu verðlaun fyrir kvikmynd sína Submarino.

Þá deildu þrír norrænir bankar með sér náttúru- og umhverfis­verðlaununum fyrir sjálfbæra bankastarfsemi. - þj



Fleiri fréttir

Sjá meira


×