Næst gerum við samstundis loftárás Óli Tynes skrifar 3. desember 2010 15:54 Flugher Suður-Kóreu ræður yfir nýjustu bandarísku orrustuþotum.
Nýr varnarmálaráðherra Suður-Kóreu segir að þeir muni þegar í stað og án nokkurs hiks gera loftárásir á Norður-Kóreu ef landið geri sig sekt um enn eina árásina. Forvera hans var vikið úr starfi fyrir alltof væg viðbrögð þegar Norður-Kórea gerði stórskotaliðsárás á eyna Yonpyeong í lok síðasta mánaðar. Sífellt nart Sú árás bættist við að síðastliðið sumar sökktu norðanmenn suður-kóresku herskipi. Með því fórust 46 sjóliðar. Norður-Kóreumenn hafa á undanförnum árum margsinnis hvekkt granna sína með slíku narti. Atvikin eru yfirleitt það smávægileg að ekki hefur verið gripið til hefndaraðgerða. Það hefur líka sett sinn svip á samskipti ríkjanna að Norður-Kórea er talin eiga kjarnorkuvopn. Og ríkisstjórn landsins þykir gersamlega óútreiknanleg. Nú er nóg komið Ef marka má Kim Kwan-jin hinn nýja varnarmálaráðherra er þó mælirinn nú fullur. Sunnanmenn munu ekki líða meira nart. Lítill vafi er á að Suður-Kóreski flugherinn er fullfær um að gera árásir og valda miklu tjóni norðan landamæranna. Norður-Kóreski flugherinn er að vísu um helmingi stærri en sá sunnanmegin. Hann samanstendur hinsvegar mest af eldgömlum og úreltum kínverskum eða rússkesnkum bardagavélum. Suður-Kóreski flugherinn er hinsvegar búinn nýjustu bandarísku orrustuþotum. Sömu sögu er raunar að segja um landheri og flota ríkjanna. Fjöldinn er norðanmegin, en tæknin og gæðin sunnanmegin.
Mest lesið Segja „fit to fly“ vottorð brjóta gegn siðareglum lækna Innlent Byrja að rukka sérstaklega fyrir ökuskírteini á plasti Innlent Bein útsending: Framboðslistum skilað í Hörpu Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Telur ráðningu Jóns í ráðuneytið ekki koma til af góðu Innlent Faðir Dags gagnrýnir Kristrúnu: „Dagur veginn og metinn og léttvægur fundinn“ Innlent Matráður segir upp á Mánagarði Innlent Ekkert gaman að heyra að allt sé að fara til fjandans Innlent Trump lék ruslakarl í Wisconsin Erlent „Ég sé bara íhaldssemi hérna“ Innlent Fleiri fréttir Ný flaug flaug lengra en áður Leita manns sem skildi eftir sprengiefni á lestarstöð í Berlín Sækja hraðar fram í Dónetsk Trump lék ruslakarl í Wisconsin Halda áfram leit eftir eyðileggingu flóðanna Nágranna Erlu enn saknað: „30 bílar bara í hrúgu hérna fyrir utan hjá mér“ Segjast rannsaka ásakanir um kosningasvik í Georgíu Beðin um að tilkynna líkfundi Óttast að hermenn Kim öðlist reynslu af hernaði Sagði Trump heltekinn hefndarvilja Tala látinna á Spáni hækkar hratt Biden í bobba eftir ummæli um rusl Loftvarnir Íran verulega laskaðar eftir árásir helgarinnar „Við getum ekki þrýst á fólk að koma til baka“ Naim Qassem tekur við stjórn Hezbollah Sporvagn af sporinu í Osló og inn í verslun Ákvörðun Ísrael að banna UNRWA vekur reiði og ótta Bæjarstjóri austurrísks bæjar skotinn til bana Jafnaðarmenn í Litháen unnu sigur Vara eindregið við mengun frá gashelluborðum Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Vill hvorki gera meira né minna úr árásunum en ástæða er til Orðljótir stuðningsmenn Trump létu gamminn geisa í New York Líkamsleifar manns úr Sverris sögu frá 1197 fundnar Þingmanni vikið úr Verkamannaflokknum eftir líkamsárás Ætla ekki að viðurkenna úrslitin og kalla eftir mótmælum Vannærðir hermenn Kim sagðir „fallbyssufóður“ Flutningabíl ekið inn í þvögu í Tel Aviv Lokaði unnustann í ferðatösku þar til hann lést Vilja nota Patriot-kerfi á skipum til að skjóta niður kínverskar eldflaugar Sjá meira