Innlent

Brynjar sakaður um að hafa rofið trúnað

Brynjar Níelsson lögmaður.
Brynjar Níelsson lögmaður.
Slitastjórn Glitnis hefur krafist þess að lögfræðiálit Brynjars Níelssonar, formanns Lögmannafélags Íslands, sem nýlega var lagt fyrir dóm í New York, verði metið ógilt. Álit Brynjars er lagt fram af lögmönnum stefndu, svokallaðri klíku Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, og í því hrekur Brynjar þau rök álitsgjafa slitastjórnarinnar að íslenskir dómstólar hafi ekki burði til að takast á við svo umfangsmikið mál og því eigi það heima í Bandaríkjunum.

Slitastjórnin gagnrýnir Brynjar harðlega fyrir að taka ekki fram í áliti sínu að hann hafi þar til í júlí verið slitastjórninni til ráðgjafar um það hvort vísa skyldi einhverjum öngum málsins í sakamálarannsókn. Sem ráðgjafi hafi hann haft aðgang að öllum trúnaðarupplýsingum sem málið varða. Þann trúnað hafi hann rofið og sé því vanhæfur til að veita álit sitt. Slitastjórnin hefur skorað á Brynjar að afturkalla álitið, en því hafnar hann.

Í bréfi til slitastjórnarinnar kveðst Brynjar við álitsgerðina á engan hátt hafa nýtt sér þær trúnaðarupplýsingar sem hann öðlaðist í ráðgjafarstarfi sínu. Hann hafi einfaldlega talið það rangt mat hjá Þórði S. Gunnarssyni, sem vann álitsgerð fyrir slitastjórnina, að íslenskir dómstólar geti ekki leyst úr jafnstóru skaðabótamáli og málsóknin gegn sjömenningunum er. Hann hafi verið beðinn um að koma þeirri skoðun sinni á framfæri við dóminn og það hafi hann gert.

„Ég tek hins vegar enga afstöðu til þess hvort einhver önnur sjónarmið eða rök kunni að vera fyrir málshöfðuninni fyrir dómstól í New York,“ segir Brynjar. Slitastjórninni sé frjálst að senda inn kvörtun til úrskurðarnefndar lögmanna telji hún að yfirlýsingin brjóti gegn lögum um lögmenn og siðareglum Lögmannafélagsins. „Ég hef meiri áhyggjur af því að hótunin sem fram kemur í bréfi slitastjórnarinnar til mín samræmist ekki góðum lögmannsháttum og kunni að brjóta gegn siðareglum LMFÍ,“ segir Brynjar.

stigur@frettabladid.is



Fleiri fréttir

Sjá meira


×