Innlent

Barið á tunnur á Austurvelli

MYND/Sigurjón

Rúmlega hundrað manns hafa safnast saman fyrir utan Alþingishúsið til að krefjast þess að skipuð verði utanþingsstjórn.

Boðað var til tunnumótmæla nú klukkan tvö, á sama tíma og þing er sett að nýju eftir tveggja vikna frí.

Lilja Mósesdóttir þingmaður vinstri grænna er þessa stundina fyrir utan að ræða við mótmælendur. Fyrsta mál á dagskrá Alþingis eru óundirbúnar fyrirspurnir.

Þegar er farið að heyrast í tunnuslætti við Alþingishúsið og má því búast við að þingmenn heyri vel í mótmælendum inn í þingsal.

Lítið sést til lögreglunnar á svæðinu en þó standa þrír lögregluþjónar álengdar og fylgjast með.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×