Innlent

Tugir umferðaróhappa í borginni vegna hálku

Tugir umferðaróhappa urðu á höfuðborgarsvæðinu undir kvöld í gær, þegar snjór tók að falla og hálka myndaðist á götum.

Lögreglunni var tilkynnt um 30 umferðaróhöpp, og slasaðist fólk í tveimur þeirra. Engn meiddist þó alvarlega.

Auk þessa telur lögregla að mörg óhöpp hafi orðið til viðbótar þar sem fólk leysti sjálft úr skýrslugerð á staðnum.

Í mörgum þessara óhappa komu fleiri en einn bíll vi sögu þannig að eignatjónið í umferðinni í gærkvöldi nemur mörgum milljónum króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×