Innlent

Siðmennt heiðrar Hörð Torfason

Hörður Torfason hefur barist í þágu mannréttinda svo áratugum skiptir
Hörður Torfason hefur barist í þágu mannréttinda svo áratugum skiptir
Siðmennt afhendir í dag hin árlegu Húmanistaverðlaun Siðmenntar. Handhafi viðurkenningarinnar þetta árið er Hörður Torfason og er hann heiðraður fyrir mikilvægt og áratugalangt starf í þágu mannréttinda á Íslandi. Þá fær Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar í ár.

Viðburðurinn fer fram á Hótel Loftleiðum klukkan fimm síðdegis.

Í ár verður í þriðja sinn veitt viðurkenning sem hefur fengið heitið Fræðslu- og vísindaviðurkenning Siðmenntar. Árið 2008 hlaut Pétur Tyrfingsson sálfræðingur viðurkenninguna en 2009 hlaut Orri Harðarson hana. Eitt af megin umfjöllunarefnum félagsins er þekkingarfræðin og stuðningur við vísindalega þekkingarleit og fræðslu. Félagið veitir viðurkenningu þeim aðila eða samtökum sem hafa fært þjóðinni mikilvægt framlag í þessum efnum.

Siðmennt, félag siðrænna húmanista á Íslandi, hefur frá árinu 2005 veitt árlega húmanistaviðurkenningu félagsins.

Eftirtaldir aðilar hafa fengið viðurkenninguna hingað til: Samtökin 78, Ragnar Aðalsteinsson,Tatjana Latinovic, Rauði Kross Íslands og Alþjóðahús. Einstaklingar, félagasamtök og aðrir sem hafa lagt eitthvað mikilvægt af mörkum í anda húmanismans eiga möguleika á að hljóta hana. Eðli og markmið húmanismans birtast meðal annars í mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu Þjóðanna, en í stefnuskrá Siðmenntar segir:

„Siðmennt reynir að yfirstíga skiptingu manna í fjandsamlega hópa sem hver um sig byggir tilvist sína á ákveðinni sérstöðu, til dæmis kynþætti, trúarbrögðum, kyni, þjóðerni, stétt, tungumálum eða kynhneigð. Siðmennt vill fá fólk úr ólíkum hópum til að vinna saman að málefnum sem eru til góðs fyrir mannkyn allt."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×