Innlent

Dæmd í ellefu mánaða fangelsi fyrir að stela bíl

Konan var handtekin á Eyrarbakka.
Konan var handtekin á Eyrarbakka.

Kona var dæmd í ellefu mánaða fangelsi í dag fyrir að stela bifreið í ágúst síðastliðnum fyrir utan verslun 10-11 á Barónstíg. Konan ók svo bifreiðinni til Eyrarbakka þar sem lögreglan handtók hana.

Konan játaði brot sín skýlaust en sagði fyrir dómi að hún hefði reynt að vera án fíkniefna.

Konan hefur ítrekað komist í kast við lögin undanfarin ár. Með þjófnaðinum nú rauf hún skilorð og þótti dómara Héraðsdóms Suðurlands því refsing hennar hæfileg í 11 mánuði en dómurinn er óskilorðsbundinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×