Erlent

Áframhaldandi átök á Gaza

Einn hermaður lét lífið í sprengingunum í nótt.
Einn hermaður lét lífið í sprengingunum í nótt. Mynd/AFP
Árásir héldu áfram á landamærum Gaza-svæðisins og Ísrael í dag. Ísrael gerðu loftárásir á Gaza og Palestínumenn skutu sprengjum til baka. Hamas samtökin segja einn Palestínumann látinn eftir árásirnar.

Síðastliðinn sunnudag var tilkynnt um vopnahlé á svæðinu. Þrátt fyrir það hefur ekkert lát orðið á átökum á svæðinu. Átökin hófust á fimmtudaginn var þegar 8 Ísraelar létu lífið í skotárás við landamærin milli Ísraels og Egyptalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×