Erlent

Írena nálgast Bandaríkin

Mikið tjón varð á Púertó Ríkó
Mikið tjón varð á Púertó Ríkó mynd/AFp
Fellibylurinn Írena fór yfir Bahama-eyjar og aðrar minni eyjar á Karabískahafinu í nótt en ekki er vitað um tjón eða mannfall.

Dregið hefur úr styrkleika fellibylsins og hefur hann verið færður aftur niður í styrkleika flokk eitt. Spár gera þó ráð fyrir að krafturinn muni aukast á ný í kvöld eða í nótt og verði þá kominn í styrkleikaflokk þrjú.

Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa miklar áhyggjur af fellibylnum og hafa varað alla íbúa á austurströnd landsins að vera tilbúna þegar fellibylurinn gengur yfir ströndina í lok vikunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×