Erlent

Rændu dreng sem slasaðist í óeirðunum

Ógnvænlegar myndir og myndbönd frá óeirðunum á Englandi hafa vakið óhug um allan heim. Ekkert lát virðist vera á óöldinni og meðfylgjandi myndband sýnir ungan dreng lenda illilega í nokkrum hrottum sem fara um göturnar rænandi og ruplandi.

Svo virðist vera sem hann hafi slasast í átökum og hópast nokkrir menn í kringum hann þar sem hann situr blóðugur í götunni. í fyrstu er eins og þeir séu að hlúa að drengnum en svo sést hvernig þeir fara í gegnum bakpoka hans og ræna hann.

Þeir skilja hann síðan eftir á götunni og ganga í burtu. Þetta er eitt af mörgum myndböndum sem hafa gengið eins og eldur í sinu um Netið síðustu daga og sýna stjórnleysið sem virðist ríkja á götum Lundúna og fleiri borga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×