Erlent

Burt Reynolds að missa hús sitt

Gamla Hollywood hetjan Burt Reynolds má muna fífil sinn fegri en banki hefur gert kröfu um að einbýlishús hans í Flórída verði selt á uppboði þar sem Reynolds hefur ekki borgað af húsnæðisláni sem hvílir á því í um eitt ár.

Reynolds var eitt sinn í hópi hæstlaunuðu leikara Hollywood en hann hefur átt við margvíslega erfiðleika að glíma í ellinni sökum féleysis og heilsubrests.

Hann fór fram á gjaldþrot árið 1996 en þá bjargaði fræg endurkoma hans í myndinni Boogie Nights honum frá þeim örlögum. Frá því í fyrra hefur heilsu hans hrakað verulega í kjölfar þess að hann þurfti að fara í viðamiklar hjartaskurðaðgerðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×