Erlent

Maður handtekinn vegna sprengjunnar í Sidney

Ástralskur maður hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum í tengslum við sprengjutilræðið í Sidney í upphafi mánaðarins.

Þá lenti 18 ára gömu stúlka úr auðmannsfjölskyldu í því að sprengja var hengd um háls hennar og tók það lögregluna tíu klukkustundir að losa sprengjuna sem síðan reyndist vera gervisprengja.

Maðurinn sem er fimmtugur að aldri var handtekinn í Kentucky af lögreglumönnum frá FBI. Í frétt um málið á BBC segir að áströlsk yfirvöld ætli sér að fara fram á að hann verði framseldur til Ástralíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×