Erlent

Uppreisnarmenn að umkringja Trípólí

Uppreisnarmenn í Líbíu sækja nú að tveimur mikilvægum bæjum í grennd við höfuðborgina Trípólí. Bardagar við báða bæina hafa staðið yfir alla helgina. Takist uppreisnarmönnum að ná þessum bæjum á sitt vald er Trípólí algerlega umkringd á landi en herfloti  NATO einangrar borgina frá sjó.

Meðan á bardögunum stóð um helgina flutti Muammar Gaddafi ávarp til þjóðarinnar í líbíska sjónvarpinu. Þar hvatti hann landsmenn til að berjast gegn svikurum og NATO og frelsa landið úr klóm þeirra.

Þetta var fyrsta ávarp Gaddafi síðan að uppreisnarmenn hófu sókn sína í átt að Trípólí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×