Erlent

Pissaði á 12 ára stúlku í flugvél

Piss piss
Piss piss Mynd/AFP
Átján ára piltur, Robert Vietze, hefur verið rekinn úr unglingalandsliði Bandaríkjanna í skíðaíþróttum fyrir að hafa kastað af sér vatni á 12 ára stúlku sem var með honum í flugvél fyrr í vikunni.

Samkvæmt skjölum lögreglu hafði Vietze drukkið fimm eða sex bjóra og tvær rommblöndur áður en hann steig upp í flugvélina. Hann ber sjálfur að hafa lognast út af í sæti sínu, en faðir tólf ára stúlku sagðist hafa staðið Vietze að verki.

Pilturinn mun sennilega ekki verða kærður fyrir ósiðsamlegt athæfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×