Erlent

Dauðadómur fyrir 11 morð

Raðmorðingi sem myrti ellefu konur í borginni Cleveland var í gær dæmdur til dauða fyrir glæpi sína. Anthony Sowell var handtekinn árið 2009 grunaður um að hafa beitt konu kynferðisofbeldi. Eftir það fundust jarðneskar leifar kvennanna víðs vegar í húsi hans og grafnar í lóðinni. Þær hurfu á árunum 2007 til 2009 og höfðu verið kyrktar og svívirtar.

Sowell, sem er 51 árs gamall, játaði glæpi sína, en baðst afsökunar í von um að sleppa við dauðadóm. Var meðal annars lögð áhersla á að hann hefði átt erfiða æsku og hafði einnig gegnt herþjónustu á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×