Flugfélög fljúga frítt með hjálpargögn til Afríku 12. ágúst 2011 14:53
Á fyrstu tólf dögum ágústmánaðar hafa 26 birgðaflutningavélar flogið með 531 tonn af hjálpargögnum frá UNICEF til þurrkasvæðanna á austurodda Afríku. Megináhersla hefur verið lögð á að senda næringarbætt hnetumauk fyrir alvarlega vannærð börn ásamt næringarbættu maís- og sojamjöli sem gera má úr graut. Flutningur nær helmings þeirra birgða sem sendar hafa verið í ágúst hefur verið UNICEF að kostnaðarlausu. Flugfélögin Virgin Airlines, Cargolux og British Airways hafa öll gefið samtökunum birgðaflug. Meðal þeirra hjálpargagna sem hafa borist á svæðið á umræddu tímabili eru 170 tonn af næringarbættu hnetumauki, 172 tonn af maís- og sojamjölsblöndu, 21 tonn af orkuríkum kornstöngum og 37 tonn af mikilvægum lyfjum og saltupplausn til að koma í veg fyrir ofþornun. Einnig hafa verið send á vettvang tæki sem notuð eru til að að hreinsa vatn og gera það hæft til drykkju, tæplega 5 milljónir skammtar af bóluefni gegn mislingum, mænuveiki, stífkrampa, barnaveiki og kíghósta; auk segldúka, tjalda, vatnshreinsitaflna og fleira. UNICEF sendir hjálpargögn alla jafna með skipum. Ástandið er hins vegar svo alvarlegt að þörf er á hraðari flutningsmáta til að brúa bilið þangað til skipsfarmar taka að berast reglulega, þ.e. á næstu vikum.Áframhaldandi þörf Þessi hjálpargögn bætast við þau 1.300 tonn sem dreift var í suðurhluta Sómalíu í síðasta mánuði. Þá hefur miklu magni hjálpargagna einnig verið dreift í öðrum hlutum landsins sem og í Eþíópíu, Keníu og Djibútí. UNICEF áætlar að á næstu sex mánuðum, hið minnsta, þurfi samtökin að senda á vettvang 5.000 tonn af næringabættri fæðu fyrir vannærð börn í hverjum mánuði. Íslendingar hafa verið ötulir við að styrkja neyðaraðgerðir UNICEF í Austur-Afríku. Enn er hægt að leggja söfnuninni lið með því að hringja í söfnunarsímnúmerin 908-1000 (1.000 krónur), 908-3000 (3.000 krónur) og 908-5000 (5.000 krónur). Einnig er hægt að leggja inn á sérstakan söfnunarreikning: 515-26-102040 (kt. 481203-2950)
Mest lesið „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Innlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Innlent Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Innlent Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Innlent Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Erlent Tvö börn stungin til bana í Southport Erlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Fleiri fréttir Mótmæli vegna endurkjörs Venesúelaforseta Tvö börn stungin til bana í Southport Grunaður árásarmaður sautján ára gamall Skoða dómsátt í barnaníðsmáli íslensks morðingja Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Kynnir breytingar á hæstarétti og friðhelgi forseta Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Á fjórða þúsund manna glímir við mikla elda í Kaliforníu Maduro endurkjörinn í afar óeðlilegum kosningum Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Óttast stigmögnun átaka við landamæri Ísrael og Líbanon Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Ísrael hét hefndum og hæfði skotmörk í Líbanon Biður eiginkonuna afsökunar á að hafa misst giftingarhringinn í Signu Ellefu ungmenni létust í loftárás á fótboltavöll Börn stærsti hluti látinna eftir árás á skóla FBI dregur forstjórann í land og staðfestir að Trump hafi orðið fyrir byssukúlu Útskýrir ummælin um barnlausar kattarkonur Þriðja ungmennið handtekið vegna drápsins í Landskrónu Fundu óvænt merki um mögulegt örverulíf á Mars Weinstein lagður inn á sjúkrahús með Covid-19 og lungnabólgu Vaxandi áhrif hlýnunar á úrkomumynstur og fellibyli Hugmyndafræðilegur ágreiningur klýfur Murdoch-fjölskylduna Obama-hjónin lýsa yfir stuðningi við Harris Skemmdarverk unnin á hraðlestarlínum umhverfis París Einn valdamesti fíkniefnabarón heims handtekinn Neitar að staðfesta kappræður við Harris fyrr en eftir útnefninguna Sagðist ekki myndu þegja um Gasa eftir fund með Netanyahu Trump veltir fyrir sér möguleikanum á því að vera myrtur af Írönum Skógareldar í Jasper-þjóðgarðinum dreifast í byggð Sjá meira