Erlent

Eistneski byssumaðurinn látinn

Eistneska lögreglan að störfum - myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint.
Eistneska lögreglan að störfum - myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Mynd/AFP
Maðurinn sem réðst inn í Varnarmálaráðuneytið í Tallin, höfðuborg Eistlands fyrr í dag, er látinn. Hann réðst inn í ráðuneytið um klukkan 12:30 að íslenskum tíma, hleypti þar af skotvopni og tók sér gísl, samkvæmt því sem greint hefur verið frá í þarlendum miðlum.

Ekki er vitað hvort einhver hafi særst í árásinni, en fjöldi sjúkra- og lögreglubíla röðuðu sér upp fyrir utan ráðuneytið og viðbúnaður var mikill. Síðar var tilkynnt að maðurinn hefði verið handsamaður af lögerglu, en eftir því sem nú er greint frá á vef The Washington Post er maðurinn nú látinn.


Tengdar fréttir

Búið að yfirbuga byssumanninn - tók fólk í gíslingu

Lögreglan í Eistlandi hefur yfirbugað byssumann sem réðst inni í varnarmálaráðuneyti Eistlands í Tallinn síðdegis á staðartíma í dag. Ekki er vitað hvort einhver hafi særst í árásinni en skothvellir og sprengingar heyrðu frá byggingunni. Eistneskir fjölmiðlar segja að maðurinn hafi tekið starfsfólk í gíslingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×