Erlent

Hefnt fyrir drápin á sérsveitarmönnum

Þyrla sömu gerðar og talíbanarnir skutu niður.
Þyrla sömu gerðar og talíbanarnir skutu niður. MYND/AP
Bandarískur hershöfðingi í Afganistan segir að hópi Talíbana sem talinn er hafa staðið á bakvið árás á Chinook þyrlu hersins á dögunum hafi verið útrýmt í loftárás á mánudaginn.

Þrjátíu og átta hermenn féllu í árásinni á þyrluna þar á meðal liðsmenn í Navy Seals sérsveitinni sem sá um að koma Osama bin Laden fyrir kattarnef. Árásin er sú mannskæðasta sem Bandaríkjamenn hafa orðið fyrir frá því stríðið í Afganistan hófst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×