Erlent

Leðurblaka laus í flugvél

Leðurblaka
Leðurblaka
Það er ekki á hverjum degi sem þú sest upp í flugvél og í miðju flugi byrjar leðurblaka að fljúga um flugvélina. Farþegar um borð í vél flugfélagsins Delta lentu í því í dögunum.

Í miðju flug byrjaði lítil leðurblaka að fljúga um loftrými vélarinnar og urðu margir farþegar ansi skelkaðir. „Ég vaknaði og sá þá að leðurblaka var að fljúga yfir farþegum vélarinnar," segir farþegi um borð í vélinni.

„Ég tók upp símann til að ná þessu á myndband því vinir mínir myndu annars aldrei trúa mér."

Leðurblakan flaug að lokum inn á klósett og náðu flugfreyjurnar að loka hana þar inni. Flugvélin snéri þó við, og var leðurblakan fjarlægð úr flugvélinni, áður en hún hélt aftur á áfangastað.

Mynd af þessu skemmtilega atviki má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×