Erlent

Frakkar þjálfuðu uppreisnarmenn

Alain Juppe segir frakka hafa þjálfað uppreisnarmenn.
Alain Juppe segir frakka hafa þjálfað uppreisnarmenn. Mynd/AFP
Utanríkisráðherra Frakklands, Alain Juppe, viðurkenndi í dag að Frakkland hefði sent „fáeina leiðbeinendur" til Líbíu til að þjálfa uppreisnarmenn. Þetta sagði hann í viðtali við útvarpsstöðina Europe-1 en það er ekki í samræmi við fyrri yfirlýsingar, að Frakkar hafi aðeins sent gæslumenn til verndar frönskum erindreka.

Juppe sagðist og vonast til að hlutverki NATO í Líbíu lyki sem fyrst - strax og uppreisnarmenn steypa Gaddafi fyrir fullt og allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×