Erlent

Höfundur Hound dog og Jailhouse Rock látinn

Elvis Presley
Elvis Presley
Textahöfundurinn Jerry Leiber lést í gær, 78 ára að aldri. Leiber er þekktastur fyrir að hafa samið lögin Hound Dog og Jailhouse Rock sem rokk-kóngurinn Elvis Presley gerði ódauðleg á sínum tíma.

Leiber dó úr kransæðastíflu á heilsugæslustofnun í Los Angeles, eftir því sem Randy Poe, forstjóri útgáfufélags hans, sagði við Reuters fréttastofuna.

Hann sagði jafnframt að fjölskylda hans hafi verið stödd hjá honum þegar hann kvaddi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×