Erlent

Skotárás á körfuboltaleik

Mynd úr safni
Sex eru slasaðir eftir að byssumaður hóf skothríð á körfuboltaleik í Fíladelfíu í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Maðurinn hóf skothríðina í hálfleik og eru fimm karlmenn og ein kona á meðal hinna slösuðu. Einn er í lífshættu en hinir minna slasaðir.

Talsmaður lögreglunnar segir í samtali við Reuters-fréttastofuna að ekki sé vitað um tildrög skotárásarinnar. Byssumaðurinn hafi flúið af vettvangi og sé ófundinn.

Verið er að yfirheyra vitni en um fimm hundruð manns voru á leiknum, sem var úrslitaleikur í sumardeild þar í bæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×