Erlent

Tók upp skammbyssu á veitingastað - þrír létust

Fyrir utan veitingastaðinn í dag
Fyrir utan veitingastaðinn í dag mynd/AP
Byssumaður hóf skyndilega skothríð inni á veitingastað í borginni Carson í Nevada í Bandaríkjunum í dag. Þrír létust eftir að hafa orðið fyrir skoti og nokkrir særðust.

Talsmaður lögreglunnar segir að þegar skotárásinni var lokið hafi byssumaðurinn skotið sjálfan sig í höfuðið og látist stuttu síðar á sjúkrahúsi.

Ekki er vitað hvað honum gekk til en bandaríska alríkislögreglan rannsakar nú málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×