Innlent

Vill ekki fangelsi á Hólmsheiði

Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðsson.
Björgvin G. Sigurðssyni líst illa á hugmynd innanríkisráðherra um byggingu nýs öryggisfangelsis á Hólmsheiði og segir að mæta megi uppsafnaðri eftirspurn eftir þjónustunni á hagkvæmari hátt. Engin ákvæði séu í fjárlögum um slíka nýja stórbyggingu og því þurfi umræðu um málið í sölum Alþingi.

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður og fulltrúi í fjárlaganefnd, hefur aðrar hugmyndir en Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, um hvernig bæta megi fangelsismál hér á landi.

„Ég held að það blasi við, til að fá sem mest út úr fjármunum ríkisins að byggja við hið stórgóða öryggisfangelsi við Eyrarbakka, Litla Hraun, en byggja nýtt komu og gæsluvarðhaldsfangelsi á Reykjavíkursvæðinu, menn geta valið því stað hvar sem er, fyrir miklu minni fjármuni. Þarna er ráðherra að tala um nýtt fangelsi, öryggis- og gæsluvarðahalds fyrir á þriðja milljarð króna,“ segir Björgvin.

Hann segir að anna megi uppsafnaðri eftirspurn eftir þjónustunni á þennan hátt og jafnvel hraðar en ef hugmynd Ögmundar verður ofan á.

Stofnkostnaður við nýtt öryggisfangelsi á Hólmsheiði, nokkra kílómetra frá hinu á Eyrarbakka er alltof mikill. Það gefur augaleið og það kemur aldrei í staðinn fyrir ferðakostnað og sparnað í því,“ segir Björgvin.

Þá segir hann eina ákvæðið í fjárlögum, um byggingu á nýju fangelsi, sé í 6. grein, þar sem segir að heimild sé að leigja eða kaupa nýtt gæsluvarðhaldsrými og selja það gamla. Ekki orð um nýja stórbyggingu sem hýsti nýtt gæsluvarðhalds- og öryggisfangelsi. Það er stefnubreyting sem ekki hefur hlotið umræðu eða afgreiðslu á Alþingi.

Þetta þarf að leiða til lykta á Alþingi, vilji ráðherrans er ljós og það er hið besta mál og nú skulum við taka málefnalega umræðu um faglegar og fjárhagslegar forsendur fyrir þessum vilja ráðherrans sem ég held að eigi eftir að hafa mikil áhrif á framvindu málsins,“ segir Björgvin og bætir við: „Alveg eins og að velferðarráðherra einn tekur ekki ákvörðun um nýjan Landspítala, það er ákveðið á Alþingi þó að tillaga  og vilji ráðherrans blasi við.“

Björgvin hefur óskað eftir umræðu utan dagskrár á Alþingi við innanríkisráðherra um málið á september þinginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×