Innlent

Ætla að semja fyrst og tala svo við ríkið

Vilhjálmur Egilsson. ASÍ og SA ætla að setja kraft í kjaraviðræður. Stefna að þriggja ára kjarasamningi, sem taki gildi 1. júní, hafi þá náðst samkomulag um það sem að stjórnvöldum snýr. Annars verði gerður skammtímasamningur. Laun hækki í mars.
Vilhjálmur Egilsson. ASÍ og SA ætla að setja kraft í kjaraviðræður. Stefna að þriggja ára kjarasamningi, sem taki gildi 1. júní, hafi þá náðst samkomulag um það sem að stjórnvöldum snýr. Annars verði gerður skammtímasamningur. Laun hækki í mars. Mynd/GVA

Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa náð saman um að reyna að ljúka vinnu við kjarasamning til þriggja ára. Gangi það eftir taka launahækkanir gildi í marsmánuði.

Þriggja ára gildistími nýja samningsins verður hins vegar háður því að aðilarnir nái í framhaldinu niðurstöðu fyrir 1. júní í viðræðum sínum við stjórnvöld um tilteknar aðgerðir. Takist það ekki eftir mun samningur aðila vinnumarkaðarins breytast í skammtímasamning.

„Þetta snýst ekki endilega um að við séum sammála um hvernig eigi að leysa hvert einstakt mál," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Mörg mál þurfi að klárast, sum þeirra séu sameiginleg áhugamál SA og ASÍ en önnur ekki.

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að með þessu sé rofin sú kyrrstaða sem kjaraviðræður hafi verið komnar í. „Tíminn líður og við erum óþreyjufull," segir hann.

Nú verði settur kraftur í viðræðurnar. Fundir á vegum Flóabandalags, iðnaðarmanna og verslunarmanna eru á dagskrá á mánudag og þriðjudag. Vilhjálmur leggur áherslu á að ríkisvaldið verði hluti af öllu ferlinu. Gylfi segir að nú sé fundin leið til að gefa Alþingi og stjórnvöldum ráðrúm til þess að ræða ýmis viðamikil mál, sem séu á borði stjórnvalda, og ná um þau niðurstöðu.

Gylfi segir að það sé vissulega nýlunda að aðilar vinnumarkaðar­ins geri samning sín á milli áður en ljóst sé hvort niðurstaða ráðist um aðkomu ríkisvaldsins að samningum. Þetta sé hins vegar sú leið sem menn fari í ljósi aðstæðna í pólitíkinni.

Gylfi segir ljóst að ASÍ og SA muni ekki ná sameiginlegri niðurstöðu um sjávarútvegsmál. Hingað til hefur SA lagt höfuðáherslu á að leysa þurfi ágreining um stjórn fiskveiða áður en gengið verði til samninga. Vilhjálmur segir að SA leggi ekki síður en áður áherslu á sjávarútvegsmál. Hins vegar þurfi að ræða fleiri brýn mál í tengslum við gerð kjarasamninga.

Hvorki Vilhjálmur né Gylfi vilja ræða hugsanlegar prósentur þeirra launahækkana sem hugsanlega megi semja um í viðræðunum fram undan; það sé ótímabært á þessu stigi.

peturg@frettabladid.is








Fleiri fréttir

Sjá meira


×