Erlent

Unglingur ætlaði að sprengja skóla sinn í loft upp

Lögreglan í borginni Tampa í Flórída hefur handtekið 17 ára gamlann ungling sem ætlaði sér að sprengja skóla sinn í loft upp.

Samkvæmt frásögnum í bandrískum fjölmiðlum lagði lögreglan hald á ýmis efni, tæki og tól til sprengjugerðar á heimili unglingsins en talið er að ef unglingnum hefði tekist að koma sprengjunni fyrir í skólanum og sprengja hana hefði það kostað fleiri mannslíf. Auk þess fundust teikningar af skólanum og nákvæm áætlun um sprenginguna.

Unglingurinn sem hér um ræðir var rekinn frá skólanum árið 2009. Lögreglan hafði fengið ábendingu um fyrirætlun unglingsins og hafði fylgst með honum um tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×