Ófullnægjandi skýringar á Magma máli Þorbjörn Þórðarson skrifar 24. janúar 2011 19:00
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið og forsætisráðuneytið hafa ekki gefið fullnægjandi skýringar við athugasemdum umboðsmanns Alþingis í Magma-málinu að mati Geysis Green Energy, sem kvartaði til umboðsmanns. Umboðsmaður Alþingis sendi forsætisráðherra bréf fyrr í haust þar sem hann gerði athugasemdir við yfirlýsingar ráðherrans og ýmsar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar um fjárfestingu Magma á HS Orku, en efni bréfsins var opinberað í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku. Tilefni bréfsins var kvörtun sem barst frá lögmanni Geysis Green Energy, en fyrirtækið seldi Magma hlut sinn í HS Orku. Umboðsmaður Alþingis benti forsætisráðherra á að stjórnvöld hefðu haft tækifæri til aðhafast í Magma-málinu en sleppt að nýta sér heimildir í lögum um erlenda fjárfestingu. Þá virtist hann draga í efa að ríkisstjórnin hefði viðhaft vandaða stjórnsýsluhætti. Umboðsmaður sendi efnahags- og viðskiptaráðuneytinu einnig sambærilegt bréf þar sem hann gerði athugasemdir og óskaði skýringa. Í svarbréfi forsætisráðherra sem fréttastofa hefur undir höndum kemur fram að það hafi ekki verið tilgangur nefndar um orku- og auðlindamál, sem ríkisstjórnin skipaði að hrófla við kaupum Magma á HS Orku, aðeins að kanna lögmæti viðskiptanna. Hins vegar er tekið fram í bréfinu að fræðilega hefði starf nefndarinnar getað sett af stað feril sem leiddi til endurskoðunar á niðurstöðu nefndar um erlenda fjárfestingu. Í athugasemdum Geysis Green Energy til umboðsmanns við svarbréfi forsætisráðherra kemur fram að fyrirtækið ítreki hversu óeðlilegt það sé að niðurstaða nefndar um erlenda fjárfestingu, sem taldi viðskiptin lögmæt, sé dregin í efa af stjórnvöldum sjálfum. Þá gerir lögmaðurinn jafnframt alvarlegar athugasemdir við svör efnahags- og viðskiptaráðherra og segir að ekki verði séð að ráðuneytið hafi svarað ósk umboðsmanns um skýringar heldur einungis áréttað þá óvönduðu stjórnsýsluhætti sem íslensk stjórnvöld hefðu viðhaft í málinu. Þess má svo geta að kaup Magma á HS Orku voru fullfrágengin í desember síðastliðnum, en ráðherrar í ríkisstjórnininni hafa ekki kaup á fyrirtækinu eða eignarnám, en það myndi kosta ríkissjóð að lágmarki þrjátíu milljarða króna.
Mest lesið Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Innlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Gena Rowlands er látin Erlent Neyðarástandi lýst yfir vegna apabólu í hluta Afríku Erlent Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Innlent Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Innlent Gaukarnir gista og fá snyrtingu Innlent Fleiri fréttir Halla ekki meðal umsækjenda um embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Sjá meira