Erlent

Frumlegt húsnæði til sölu

Eftirsóknarvert stofustáss.
Eftirsóknarvert stofustáss.
Fimm herbergja hús með forláta grafhvelfingu og beinagrind í kjallaranum er til sölu í Svíþjóð. Húsið var reist kringum 1750 á grunni rússneskrar kirkju.

Fasteignasalinn Leif Bertwig segir enga ástæðu til að hræðast þar sem „beinagrindin liggur í vígðri mold undir glerrúðu og hvílir í friði".

Söluverðið er 4,1 milljónir sænskra króna, sem samsvara rúmum 72 milljónum isk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×