Erlent

Dómar fyrir facebook-færslur

Jordan Blackshaw og Perry Sutcliffe-Keenan hlutu þunga refsingu fyrir facebook-færslur.
Jordan Blackshaw og Perry Sutcliffe-Keenan hlutu þunga refsingu fyrir facebook-færslur. Mynd/Chesire Police
Tveir ungir menn í Norður-Englandi voru í gær dæmdir í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til óeirða gegnum facebook. Dómana fengu þeir fyrir að búa til event inná síðunni með tíma- og staðsetningu fyrir þá sem vildu taka þátt í óeirðum

 

Nú hafa alls 1.200 manns komið fyrir dóm vegna óeirðanna í síðustu viku og samkvæmt fréttastofunni CBS gjarna hlotið „kaótíska meðferð og harkalega dóma". Þó fólk í Bretlandi styðji almennt þunga refsingu fyrir þá sem viðriðnir voru óeirðirnar hafa nokkur tilvik valdið gagnrýni. Þessi mál eru ein þeirra, enda refsingin sambærileg við venjulega dóma í kynferðisbrotamálum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×