Erlent

Barði tígrisdýr í hausinn með sleif og bjargaði bóndanum

MYND/AP

Bóndi einn í Malasíu getur þakkað konu sinni að ekki fór verr þegar stærðarinnar tígrisdýr réðst á hann og reyndi að éta. Maðurinn reyndi í fyrstu að forða sér upp í tré en kisi náði í hann og dró hann niður.

Dýrið hófst svo handa við að reyna að innbyrða manninn en konan hans, sem hafði heyrt í honum öskrin, kom þá aðvífandi og barði tígrisdýrið í hausinn með stærðarinnar trésleif. Það varð til þess að dýrið lagði á flótta og slapp eiginmaðurinn með þónokkrar skrámur en alla útlimi á sínum stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×