Erlent

Stóraukin sala á kylfum á breska Amazon

Mynd/afp
Sala á lögreglukylfum hefur aukist um tæp 19 þúsund prósent á breska söluvefnum Amazon.co.uk., karatekylfur hafa rokið upp um 11 þúsund prósent, og sala á hafnaboltakylfum úr áli hefur aukist um rúm átta þúsund prósent.

Sé litið yfir lista Amazon vefsíðunnar yfir þá gripi sem mesta söluaukningu hafa hlotið kemur í ljós að kylfur eru í tíu af tuttugu efstu sætunum. Þá hefur sala á stálskóflum með tenntum brúnum aukist um tæp 140 þúsund prósent, og trónir í efsta sæti yfir mest seldu gripina.

Óeirðirnar sem brutust út í Tottenham-hverfi í London aðfararnótt sunnudags hafa stækkað ört og teygt anga sína til fleiri borga í Englandi, á borð við Birmingham, Liverpool og Manchester. Nóttin var heldur rólegri í London en verið hefur undanfarið, en 16 þúsund lögreglumenn voru á vakt í borginni í nótt. Þrír létust hinsvegar í Birmingham þegar bifreið var ekið á þá á ofsahraða og telja aðstandendur hinna látnu að óeirðaseggir séu ábyrgir fyrir drápunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×