Erlent

Borgaði partýhaldara fyrir að þegja

Silvio Berlusconi
Silvio Berlusconi mynd úr safni
Ítalskur kaupsýslumaður hefur verið handtekinn ásamt eignkonu sinni fyrir að hafa tekið við greiðslu frá Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, í tengslum við ásaknir á hendur honum um að hafa hitt vændiskonur.

Maðurinn hefur áður sagst hafa haldið partý fyrir Berlusconi og útvegað honum um þrjátíu vændiskonur. Hann hefur nú dregið framburð sinn til baka.

Lögreglan telur að forsætisráðherran hafi borgað manninum um hálfa milljón evra í staðinn.

Forsætisráðherran segir að hann hafi greitt manninum, en það hafi ekki verið gert í tengslum við málið - hann hafi einungis viljað hjálpa fjölskyldunni sem ætti í fjárhagserfiðleikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×