Erlent

Mun fá nafnið Lee eða Maria

Mynd tengist frétt ekki beint
Mynd tengist frétt ekki beint Mynd úr safni
Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna fylgist nú grannt með gangi mála í Mexíkóflóa en þar hefur lægð myndast síðustu daga.

Íbúar í Texas og Flórída eru hvattir til að vera á varðbergi um helgina og gera allar viðeigandi ráðstafanir ef óveðrið færist í aukana. Í gærkvöldi sagði veðurstofan að vindhviður í lægðinni væru nú allt að 56 kílómetrar á klukkustund.

Ef lægðin heldur áfram að aukast og verður að fellibyl, er gert ráð fyrir að hann fái nafnið Lee eða Maria.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×