Erlent

Fá að taka egg úr látinni dóttur sinni

MYND/Getty
Dómstóll í Ísrael hefur fallist á beiðni foreldra sautján ára gamallar stúlku þess efnis að egg verði tekin úr henni og þau fryst, en stúlkan lést í umferðarslysi á dögunum.

Þetta mun sennilega vera í fyrsta sinn sem fallist er á slíka aðgerð í heiminum fjölskyldan fór fram á þessa óvenjulegu bón um leið og hún gaf leyfi fyrir því að líffæri stúlkunnar verði notuð við ígræðslur. Fjölskyldan hefur neitað að tjá sig nánar um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×