Frumvarp Árna og Sigmundar mjög óvenjulegt 29. janúar 2011 08:00 Róbert Marshall „
Þetta er mjög óvenjulegt,“ segir Róbert Marshall, formaður allsherjarnefndar Alþingis, um frumvarp sem sjálfstæðismaðurinn Árni Johnsen og Samfylkingarmaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson hafa lagt fram um að veita rússneska rithöfundinum Madinu Salamovu íslenskan ríkisborgararétt. Salamova, sem þekkt er undir nafninu Marie Amelie, hefur búið í Noregi frá unga aldri en var fyrr í vikunni gert að yfirgefa landið og er nú komin til Rússlands. Árni sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að frumvarpið væri lagt fram að Marie forspurðri. Haft var eftir lögmanni hennar í gær að hún kærði sig ekki um að verða íslenskur ríkisborgari. Spurður hvort frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar til handa manneskju sem ekki hefur sóst eftir honum sé yfir höfuð þingtækt segist Róbert ekki vita það. „Ég verð bara að segja það alveg eins og er,“ bætir hann við. „Þetta kom mjög flatt upp á mig. Ég hef ekki rætt við þá um þetta og vil sem minnst um málið segja.“ Róbert segir venjuna að allsherjarnefnd leggi fram frumvarp um veitingu ríkisborgararéttar, og þá að undangengnum umsóknum um það til þingsins. Hann veit ekki til þess að þingmannafrumvarp um ríkisborgararétt hafi verið lagt fram áður. Róbert tekur hins vegar fram að þingferill hans sé stuttur og hann sé því ekki sérfróður um málefnið. „Þú ættir kannski að spyrja helsta sérfræðing landsins í veitingu ríkisborgararéttar, Vigdísi Hauksdóttur.“ - sh Alþingi alþingismenn ráðherra
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Innlent Fleiri fréttir Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Sjá meira