Rannsókn lögreglu hefur engu skilað 22. janúar 2011 10:00 Fartölva fannst í varaþingmannsskrifstofu Alþingis fyrir ári. Hún hafði verið tengd tölvukerfinu í mánuð. Enginn veit hver á tölvuna. Fréttablaðið/GVA „
Flest herbergi hafa verið opin og menn talið það í lagi. En nú verðum við að horfast í augu við það að við búum í breyttum heimi,“ segir Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis. „Okkar varnir höfðu fyrst og fremst snúið að utanaðkomandi árásum. Við höfðum ekki tryggt okkur nægilega fyrir því að einhver kæmist inn í húsnæðið og setti í samband tölvu. Nú er búið að efla þær varnir,“ segir hún. Í ljós hefur komið að fartölva sem fannst í varaþingmannaherbergi Hreyfingarinnar á skrifstofum Alþingis 2. febrúar í fyrra var tengd við tölvukerfi Alþingis 28. desember 2009 og hafði því verið í stöðugu sambandi þegar hún fannst mánuði síðar. Engin merki eru um að gögn hafi verið flutt af henni. Morgunblaðið greindi frá málinu á fimmtudag og var það rætt á Alþingi sama dag. Forsætisnefnd Alþingis fundaði um málið í gærmorgun með formönnum þingflokka, fulltrúum tölvudeildar Alþingis og lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Á fundinum var farið yfir málið. Þar kom fram að tölvan fannst fyrir tilviljun undir blöðum í herbergi Hreyfingarinnar sem sjaldan er notað þegar starfsmaður tölvudeildar Alþingis kom þangað til að ná í prentara. Netsnúra sem tengdist borðtölvu í herberginu hafði verið tekin úr sambandi og tengd við fartölvuna. Alþingi greip til ráðstafana um leið og tölvan fannst. Af því sem starfsmenn tölvudeildar Alþingis mátu hafði tölvan ekki verið notuð til að hlaða niður gögnum af tölvukerfi Alþingis. Þvert á móti virðist hún hafa verið lítið notuð. Engu að síður voru teknar myndir af skjá tölvunnar með farsíma áður en hún var tekin úr sambandi við tölvunetið og ákveðið að afhenda hana lögreglu til rannsóknar. Að því búnu var slökkt á tölvunni en talið er að við það hafi gögn á harða diski hennar sjálfkrafa eyðst. Rannsókn lögreglu hefur ekkert leitt í ljós; engin gögn fundust í tölvunni, búið var að afmá öll auðkenni af henni og fundust á henni engin fingraför ef frá eru skilin fingraför starfsmanna tölvudeildar Alþingis. Af þessum sökum liggur enginn undir grun. Fréttablaðið fékk engar upplýsingar um tölvuna þegar eftir því var leitað í gær. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins segir tölvuna í fórum lögreglu og málið sé enn opið þótt rannsókn hafi lítið miðað. Myndir sem teknar voru af tölvunni eru jafnframt í fórum lögreglu. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Innlent Fjögurra daga gamlir tvíburarnir fórust á meðan faðirinn brá sér frá Erlent Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Innlent Rannsaka innbrot og mögulega vatnsmengun á herstöð í Þýskalandi Erlent Gena Rowlands er látin Erlent Neyðarástandi lýst yfir vegna apabólu í hluta Afríku Erlent Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Innlent Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Innlent Gaukarnir gista og fá snyrtingu Innlent Fleiri fréttir Halla ekki meðal umsækjenda um embætti forstjóra Umhverfis- og orkustofnunar Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Sjá meira