Erlent

Hringdi 65 þúsund sinnum í fyrrverandi kærastann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ætla má að unnustinn hafi einhvern tímann lagt frá sér símtólið. Mynd/ Getty.
Ætla má að unnustinn hafi einhvern tímann lagt frá sér símtólið. Mynd/ Getty.
Hollenskir saksóknarar hafa ákært 42 ára gamla konu fyrir að hafa hringt 65 þúsund sinnum í fyrrverandi kærasta sinn í fyrra. Þetta jafngildir því að hún hafi hringt í hann um 178 sinnum á dag.

Maðurinn, sem er 62 ára gamall íbúi frá Hag, kærði konuna til lögreglunnar í ágúst síðastliðinn vegna ónæðis af símtölum hennar. Lögreglan handtók svo konuna á mánudaginn og lagði hald á símtæki og tölvur.

Saksóknarar sögðu í dag að konan hefði haldið því fram að hún ætti í ástarsambandi við manninn. Fjöldi símtalanna hefði ekki verið óeðlilega mikill. Karlmaðurinn neitaði því hins vegar að þau ættu í ástarsambandi.

Rétturinn hefur þegar fyrirskipað konunni að hringja ekki aftur í manninn, eftir því sem fram kemur í frétt Associated Press.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×