Þríburar meðal 29 arnarunga sem komust á legg 26. ágúst 2011 11:17 Haförn í búri. Mynd/ Stefán.
Arnarvarp gekk vonum framar þetta sumarið og komust alls 29 ungar á legg, þrátt fyrir afleitt tíðarfar í vor. Aðeins sjö sinnum áður hafa komist upp fleiri arnarungar á síðustu fimmtíu árum. Samkvæmt upplýsingum Náttúrufræðistofnunar telur arnarstofninn á Íslandi nú 66 pör. Einungis nítján þeirra komu þó upp ungum í ár en varpárangur þeirra var hins vegar með besta móti, því hlutfallslega mörg þeirra komu upp tveimur ungum og eitt þeirra kom upp þremur ungum. Slíkt er afar sjaldgæft hér á landi og er aðeins vitað um átta slík tilvik frá seinni hluta nítjándu aldar. Náttúrufræðistofnun segir arnarstofninn hafa staðið í stað undanfarin ár eftir nokkuð samfelldan vöxt frá því laust fyrir 1970. Alls hafa verið merktir 500 ernir hér á landi frá 1939, langflestir undanfarin tíu ár. Assa sem merkt var sem ungi sumarið 2005 varp nú sex ára gömul í fyrsta sinn og hafði þá sest að 85 km frá æskuóðali sínu. Þrálátar norðanáttir og kuldatíð vorið 2011 höfðu áhrif á varp fugla víða um land. Því var viðbúið að arnarvarp myndi ganga mun verr en undanfarin ár. Varpárangur arna reyndist þó í meðallagi við Faxaflóa en afar slakur við norðanverðan Breiðafjörð og á Vestfjörðum en á því svæði komu einungis 6 pör af 26 upp ungum, að því er fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar.
Mest lesið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Innlent Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Innlent „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Innlent Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði Innlent Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Innlent Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Innlent Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Innlent Mikið undir í forsetakosningum Venesúela Erlent Hringvegurinn opinn á ný Innlent Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Innlent Fleiri fréttir Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum RAX flaug yfir jökulhlaupssvæðið Smíðaði stærstu skeifu heims úr 2.852 skeifum Troðfullt á bílastæði við þjóðveginn og löng bið fram undan Farangurinn varð eftir og þurfa að keyra hringinn til að ná í hann Vatnsflaumur og vísindarannsóknir í Hvalfirði Kunningi lögreglunnar grunaður um alvarlega líkamsárás Þyrlan í vandræðum með að sækja mann sem steig í hver Hefur áhyggjur af viðhorfi Viðskiptaráðs Sækja slasaðan göngumann í Kerlingarfjöll Ferðamenn festu bíl á Fjallabaksleið nyrðri Leita skýringa á stærð hlaupsins sem er nánast búið Hringvegurinn líklega lokaður til kvölds „Það taka þessu allir með stóískri ró“ Jökulhlaup, deilur um grunnskólamál og sundkappi Vegagerðin og deilur um menntakerfið Frumvarp um sviptingu verndar lítur dagsins ljós í haust Mótmæla brottvísun Venesúelamanna við Hallgrímskirkju Hlaupið minnkað verulega en jökullinn skelfur enn Gæti orðið ófært í Þórsmörk Kýldi leigubílstjórann og borgaði ekki Lögreglan lýsir eftir My Ky Le Ekkert bendi til að hlaupið sé afleiðing eldgoss Halla verði að upplýsa um bílakaupin Sjá meira