Jón sagði já en meinti nei 27. janúar 2011 08:00 Jón Gunnarsson
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði mistök þegar atkvæði voru greidd um frumvarp til laga um stjórnlagaþing aðfaranótt 16. júní síðastliðið sumar. Jón var eini þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem greiddi atkvæði með málinu. Óli Björn Kárason sagði nei en aðrir þingmenn flokksins sátu hjá eða voru fjarverandi atkvæðagreiðsluna. Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um hvernig sjálfstæðisþingmenn ráðstöfuðu atkvæðum sínum. „Það hafa átt sér stað mistök í atkvæðagreiðslunni,“ sagði Jón í samtali við blaðið. „Ef ég hef greitt atkvæði með, sem allt bendir til, þá voru það mistök.“ Já-atkvæði Jóns var í hróplegu ósamræmi við ræðu hans um málið fjórum dögum fyrir atkvæðagreiðsluna. Í henni lýsti hann þeirri skoðun Sjálfstæðisflokksins að fresta bæri umfjöllun um málið. Hann fór hörðum orðum um vinnubrögðin, sagði málið keyrt áfram og fjölmörgum spurningum væri ósvarað. „Það er óhjákvæmilegt að komast að þeirri niðurstöðu að málið hafi verið sett fram í miklu óðagoti og taugaveiklun á síðustu dögum þingsins,“ sagði Jón í ræðunni. Að hans ósk eru starfsmenn Alþingis að skoða atkvæðagreiðsluna. „En þetta breytir engu um niðurstöðu málsins, ef þetta hefði verið tæpt hefðu menn eflaust verið betur á vaktinni, en svona getur gerst.“- bþs
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Innlent Fleiri fréttir Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Sjá meira