Erlent

Átökin í Líbíu - fundir með báðum aðilum

Uppreisnarmenn í Líbíu í sterku vígi.
Uppreisnarmenn í Líbíu í sterku vígi.
Sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Líbíu tilkynnti í dag að hann muni eiga fund með hvorum tveggja, fulltrúum uppreisnarmanna og liðsmönnum Gaddafi. Fundirnir fela ekki í sér sáttarviðræður, enda fara þeir fram með hvorum aðilanum fyrir sig.

Fundirnir eiga sér stað stuttu eftir að uppreisnarmenn brutu undir sig borgina Zawyiia, sem er aðeins 30 mílum frá Tripoli. Þannig eru þeir komnir sterkasta vígi sem þeir hafa náð síðan uppreisnin hófst fyrir sex mánuðum. Nú þegar stendur löng bílaröð útúr höfuðborginni, enda óttast íbúar að átökin nái til þeirra á allra næstu dögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×