Erlent

Dani man ekki hvar hann lagði bílnum sínum

Lögregla í Malmö hefur óskað eftir hjálp almennings við að finna bíl sem týndist í júlí. Aldraður Dani lagði bílnum sínum í miðbæ Malmö en man ekki hvar.

Búið er að prófa allar hefðbundnar aðferðir sem notaðar eru þegar bíl er stolið, en ekki er hægt að segja fyrir víst að svo hafi verið í þessu tilviki. Mögulega er hann enn þar sem honum var lagt í upphafi. Því er leitað eftir aðstoð almennings. Bíllinn er af Peugeot-gerð og á dönskum númerum. - þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×