Erlent

Chavez kominn til Venesúela

Hugo chavez
Hugo chavez
Forseti Venesúela, Hugo Chavez, hefur snúið aftur til Venesúela eftir aðra umferð lyfjameðferðar sem hann fór í á Kúbu.

Ríkissjónvarpsstöðin sýndi myndir af komu forsetans en hópur ráðherra tók á móti honum á flugvellinum. Bauð forsetinn föðurlandinu góðan daginn á Twitter-síðu sinni í gær. Chavez tilkynnti í júní að læknar á Kúbu hefðu fjarlægt krabbameinsæxli úr líkama hans. Hann skilgreindi þó ekki nánar hvar krabbameinið hefði verið.- mmf




Fleiri fréttir

Sjá meira


×