Erlent

Í fangelsi fyrir Facebook-skrif

Hundruð óeirðaseggja hafa verið leidd fyrir dómara í Bretlandi síðustu daga.
Hundruð óeirðaseggja hafa verið leidd fyrir dómara í Bretlandi síðustu daga. Fréttablaðið/AP
Um 1.400 einstaklingar hafa verið ákærðir fyrir brot í tengslum við óeirðirnar í Bretlandi í síðustu viku. Flestir hafa þegar farið fyrir dómara og nokkrir þegar hlotið dóma.

Nokkrir dómar hafa þótt orka tvímælis. Mesta athygli hafa þó vakið dómar yfir tveimur mönnum sem dæmdir voru í fjögurra ára fangelsi fyrir að skipuleggja og hvetja til óeirða á Facebook. Búist er við því að dómunum verði áfrýjað.

- mþl




Fleiri fréttir

Sjá meira


×