Erlent

50 Cent fæðir Afríku

50 Cent vill gefa afrískum börnum að borða.
50 Cent vill gefa afrískum börnum að borða.
Rapparinn og viðskiptajöfurinn 50 Cent hefur þróað nýjan orkudrykk, sem kemur á markað innan skamms. Orkudrykkurinn heitir Street King og hagnaðinum af sölu hans verður varið í að fæða afrísk börn.

50 Cent ferðaðist nýlega um Afríku og segir uppátækið innblásið af hungursneyðinni sem ríkir víða í heimsálfunni. „Ég ólst upp í fátækt, en ég var ekki svangur,“ segir 50 Cent í myndbandi sem hann sendi frá sér um málið.

Fyrst um sinn verða tvær bragðtegundir í boði, blanda af appelsínu og mangó og svo greip.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×