Ögmundur: „Allt á að þola ljósið. Allt!“ 27. janúar 2011 11:22 Ögmundur segir úrskurð Hæstaréttar hafa komið á óvart í ljósi þeirra almannahagsmuna sem eru í húfi Mynd: Stefán Karlsson
Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir eðlilegt að beina sjónum að þremur aðilum þegar kemur að ábyrgð vegna kosninga til stjórnlagaþings sem hefur verið úrskurðuð ógild. Fyrstan nefnir Ögmundur þar sjálfan Hæstarétt sem dæmdi í málinu, þá löggjafarvaldið og loks framkvæmdaaðilana. Ögmundur hélt skýrslu um kosningar til stjórnlagaþings á Alþingi þar sem hann sagði úrskurð Hæstaréttar hafa komið mjög á óvart í ljósi þeirra almannahagsmuna sem eru í húfi. Hann segir Hæstarétt ekki hafinn yfir gagnrýni, frekar en aðrar stofnanir í samfélaginu og önnur mannanna verk, enda fari nú fram eðlileg umræða í þjóðfélaginu um niðurstöðu Hæstaréttar. Í öðru lagi vill Ögmundur beina sjónum að löggjafarvaldinu. „Við horfum til okkar sjálfra sem erum ábyrg fyrir lögunum," segir Ögmundur. „Við hér í þessum sal þurfum að axla ábyrgð. Það er eðlilegt að horft sé til okkar," segir hann. Lagafrumvarpið um stjórnlagaþing var undirbúið í forsætisráðuneytinu í samráði við og með aðkomu allra flokka. Frumvarpið fór síðan til umfjöllunar á Alþingi og fór fyrir allsherjarnefnd þingsins. Ögmundur benti á að frumvarpið hafi verið samþykkt af fulltrúum allra flokka nema Sjálfstæðisflokks. Einn þingmaður hans, Óli Björn Kárason, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu en flestir þeirra sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Í þriðja lagi telur Ögmundur rétt að skoða ábyrgð framkvæmdaaðilanna, landskjörstjórn, dóms- og mannréttindaráðuneytið sáluga og sveitarfélögin. Honum finnst eðilegt að hverjum steini sé velt við og allt tekið til ítarlegrar skoðunar. „Allt á að þola ljósið. Allt!" Ítarleg greinargerð um málið verður að finna á vef innanríkisráðuneytisins innan tíðar.
Mest lesið Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Innlent Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Innlent Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Innlent Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Innlent Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Innlent Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Innlent Fleiri fréttir Fólk með erlent ríkisfang síður á bótum en Íslendingar Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Gísla Pálma refsað fyrir akstur undir áhrifum Kynhlutlaus klósett orðin að lögum Á hlaupum yfir hraunið með hræ í kjaftinum Vindorka í Dölunum og iðrakveisa á Rjúpnavöllum Stal gaskúti og stakk honum í Wolt-tösku Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Heilsugæslan skipuleggur sýnatökur vegna e. coli mengunar Greiddu 47 milljónir fyrir 175 hjálma fyrir leiðtogafundinn Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Þakklát fyrir þrjósku hundsins Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Finnst líklegt að vindorka verði þriðja stoðin í orkukerfi landsins Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Milla hætt hjá Willum Fimm milljarðar í húsnæðisúrræði fyrir hælisleitendur Lögreglan leitar að stolnum Volvo Sjá meira