Innlent

Kona kýldi aðra konu tvisvar á Nasa

mYND ÚR SAFNI

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært konu á þrítugsaldri fyrir að kýla konu á fimmtugsaldri í andlitið. Málið hefur verið þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjaness og er yngri konan ákærð fyrir líkamsárás.

Atburðurinn átti sér stað 5. apríl 2009 á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll. Yngri konunni er gefið að sök að hafa kýlt þá eldri tvisvar sinum í andlitið. Sú sem fyrir árásinni varð marðist í andliti.- jss








Fleiri fréttir

Sjá meira


×