Nemar í loðnuvinnslu í aðdraganda verkfalls 11. febrúar 2011 10:30 MYND/Hari
Nokkrir nemendur í Framhaldsskóla Vestmannaeyja fá þessa dagana frí úr skólanum til þess að vinna við loðnufrystingu á vöktum. Sverrir Albertsson, formaður Afls - starfsgreinafélags Austurlands, segist vita að löng hefð sé fyrir skólafríi á vertíðum víða á landsbyggðinni og að hann gagnrýni það ekki sérstaklega. Hins vegar séu aðstæður nú sérstakar og áhrif af verkfallsboðun í loðnubræðslum séu þarna að koma fram. „Menn eru að veiða loðnuna í verðminni afurð en annars hefði verið gert," segir Sverrir. „Verðmætasti tíminn er fram undan." Þar vísar hann til þess að venjulega hefði verið beðið eftir meiri hrognafyllingu loðnunnar áður en kraftur væri settur í veiðar og vinnslu. Heilfrysting á loðnu hófst í Eyjum á sunnudag og er unnið á sólarhringsvöktum. Verkfall er boðað í nær öllum loðnubræðslum landsins frá þriðjudagskvöldi. „Okkur finnst skjóta skökku við að það skuli vera gefin sérstök frí úr framhaldsskólum til að minnka áhrifin af okkar verkfalli og þann þrýsting sem er í okkar samningamálum," segir Sverrir. Ólafur H. Sigurjónsson, skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum, hafnar því að fríin tengist verkfallsboðun á einhvern hátt. „Það er margra áratuga hefð fyrir því í Vestmannaeyjum að nemendur hjálpi til þegar eru tarnir í fiskvinnslunni," segir hann. Eins og áður fái Framhaldsskólinn sendan lista frá Vinnslustöðinni með nöfnum nemenda sem fyrirtækið vilji ráða á vaktirnar. Skólastjórnendur fara yfir listann og þurfa að samþykkja ráðninguna og gefa sex til tíu leyfi til að vinna á hverri átta tíma vakt hjá Vinnslustöðinni: „Þeir nemendur sem best mæta í skólann sitja fyrir," segir Ólafur. „Það hefur ekki skaðað þeirra námsárangur að gera þetta." Vegna þess hve skammt er til verkfalls segir hann að færri nemendur fái frí vegna þess en í venjulegu ári. Búast megi við að hver nemandi nái að vinna þrjár til fjórar vaktir. - pg
Mest lesið Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg Innlent „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Innlent Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Erlent Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Erlent Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Innlent Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Erlent Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Erlent Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær Erlent Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Innlent Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Innlent Fleiri fréttir Viðskiptaráð biður ráðuneytið um niðurstöður námsmats Telja áform um uppbyggingu vindmyllugarða verulegt áhyggjuefni Skiptu um síma og símkort eins og nærbuxur til að hylja slóð sína Starfsmenn Veðurstofunnar í biðstöðu og kvikusöfnun heldur áfram Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Bruni í miðbænum og Landvernd slæst við vindmyllur Mikill og dökkur reykur í íbúðinni Einn fluttur á slysadeild eftir bruna á Amtmannsstíg „Það er öllum brögðum beitt til að koma vörunum sem víðast“ Þurfi að sýna skynsemi við uppbyggingu vindorkuvera Fluttur á sjúkrahús eftir að bát hvolfdi Ekki óyggjandi sönnun fyrir meintu dýraníði blóðbónda að mati MAST Hringveginum lokað við Borgarnes vegna elds í vörubíl Malarvagn kramdi bílstjórahús flutningabíls Ferðamenn í báðum bifreiðum Landsvirkjun skrefi nær því að reisa fyrsta vindorkuverið Rannsaka hugsanleg veikindi af völdum E.coli Makaði tómatsósu á útidyrahurð nágranna sinna Þvert nei á línuna kom saksóknara í opna skjöldu Gelt á Heiðu Eiríks í miðborginni Hringveginum lokað við Skeiðarársand vegna alvarlegs bílslyss Féll af hesti og var án meðvitundar Hafnar því að hafa reynt að drepa mann og dreifa dópi Maðurinn í Taílandi sagður Íri ekki Íslendingur Stjórnvöld sofi á verðinum meðan Svens sæki í börnin Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Sjá meira