Erlent

Herra Bean mætir í konunglega brúðkaupið

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Rowan Atkinson er á boðslistanum. Mynd/ AFP.
Rowan Atkinson er á boðslistanum. Mynd/ AFP.
Rowan Atkinson, sem leikur Mr. Bean í samnefndum þáttum verður viðstaddur brúðkaup Vilhjálms prins og Katrínar unnustu hans í næstu viku. Gestalistinn í brúðkaupinu var opinberaður í dag. Efstur á listanum er náttúrlega Elton John, en hann söng sig inn í hjörtu prinsanna Vilhjálms og Harrys við útför móður þeirra árið 1997. Búist er við því að David Furnis, eiginmaður Eltons, fylgi honum í brúðakaupið.

Á meðal íþróttamanna og listamanna sem fengu boð í brúðkaupið eru eftirtaldir aðilar:

David Beckham og Victoria Beckham,

Guy Ritchie leikstjóri,

Ian Thorpe sundmaður,

Gareth Thomas rugby leikmaður og

Trevor Brooking knattspyrnumaður.

Á meðal konunglegra gesta verða Margrét Þórhildur Danadrottning, konungsfjölskyldan í Grikklandi og fulltrúar frá Belgíu, Lúxemborg, Hollandi og Noregi. Þá verða líka konungbornir gestir frá Spáni og Svíþjóð. Albert prins af Mónakó mætir með Charlene Wittstock unnustu sína.

Soldáninn af Brunei og krónprinsinn frá Barein munu líka mæta ásamt sjeiknum frá Kúvæt. Einnig verða fulltrúar frá Oman, Katar, Saudi Arabíu og Abu Dhabi.

Að sjálfsögðu verða David Cameron, forsætisráðherra Breta, og Nick Glegg aðstoðarforsætisráðherra svo á staðnum ásamt fleiri ráðherrum úr ríkisstjórn Breta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×