Innlent

Fólk hvatt til þess að sniðganga Sambíóin

Kolbrún var ósátt við að fá ekki boðsmiða á þrívíddarmynd.
Kolbrún var ósátt við að fá ekki boðsmiða á þrívíddarmynd.

Búið er að stofna Facebook síðu þar sem neytendur eru hvattir til þess að sniðganga Sambíóin þar til hjónunum Kolbrúnu Ósk Albertsdóttur og eiginmanni hennar verður leyft að sjá kvikmyndina Sanctum í þrívídd.

Vísir greindi frá því í gærkvöldi að Kolbrún og eiginmaður hennar hafi ætlað að sjá myndina Sanctum. Þegar þau mættu á staðinn var þeim tjáð að gjafabréfið sem þau höfðu fengið gilti einungis á myndir sem væru á almennu verði. Dýrara er á þrívíddarmyndir og íslenskar myndir en Sanctum er þrívíddarmynd.

„Það stóð aftan á miðanum að miðinn gilti einungis á almennar myndir, ég tók ekkert eftir því fyrr en ég kom í bíóið og ætlaði þá að fá að borga bara mismunin," sagði Kolbrún í viðtali við Vísi en bíóferðin endaði einfaldlega heima þar sem ekki var mögulegt að borga mismunin.



Afgreiðslustúlka tjáði henni að ekki væri hægt að borga mismunin, heldur þyrfti hún að fara á mynd á almennu verði, það er að segja sem kostar 1.150 krónur á.

„Ég leit í kringum í mig og sá að það var engin mynd sem mig langaði að sjá sem var á almennu verði. Og ef þú lítur í Moggann þá sérðu að flestar myndir í dag eru í þrívídd."

Kolbrún hafði samband við Sambíóin og þar var henni tjáð að reglurnar væru bara svona. „Hún sagði að þetta væri út af einhverju í kerfinu hjá þeim sem væri ekki hægt að breyta. Ég hélt að þetta væri ekki svona mikið mál og ég gæti bara borgað 400 kallinn á milli. Í öðrum búðum þegar þú átt inneignarnótu fer hún bara sjálfkrafa upp í flíkina eða vöruna sem þú kaupir og svo borgar þú mismuninn."

Tæplega fjörtíu Facebook-notendur hafa skráð sig á heimasíðuna til stuðnings hjónunum sem komust ekki bíó þetta kvöldið.

Hægt er að nálgast Facebook-síðuna hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×