Átökin hörnuðu eftir því sem leið á daginn 2. febrúar 2011 20:02
Hundruð manna hafa særst og einn fallið í átökum mótmælenda og stuðningsmanna Hosni Mubaraks í Kairó höfuðborg Egyptalands í dag. Átökin hafa harnað eftir því sem liðið hefur á daginn en herinn hefur að mestu haldið sér til hlés. Fjöldi mótmælenda í Kairó náði hámarki í gærkvöldi þegar á aðra milljón manna komu saman á Frelsistorginu og nágrenni þess. Hosni Mubarak forseti ávarpaði þjóðina í gærkvöldi, lofaði stjórnarumbótum en sagðist jafnframt ætla að sitja út kjörtímabil sitt sem lýkur í september en hann myndi þá ekki bjóða sig fram aftur. Þetta hleypti illu blóði í mótmælendur sem halda fast við kröfu sína um að forsetinn segi af sér nú þegar og hafa þeir gefið forsetanum frest til föstudags til að verða við þeirri kröfu. Í dag tóku leikar að æsast þegar stuðningsmenn forsetans blönduðu sér í raðir mótmælenda. Þeir riðu inn á torgið á hestum og kameldýrum og grýttu mótmælendur. Fljótlega kom til handalögmála og þegar líða tók á daginn færðust átökin í aukana. Hundruð manna hafa slasast, þar af sumir alvarlega. Herinn skoraði á mótmælendur í gær að snúa til síns heima í nafni þjóðarinnar. Þeir hefðu komið kröfum sínum á framfæri. Mótmælendur hafa ekki orðið við þessu og í dag hefur herinn að mestu haldið sér til hlés. Bandaríkjaforseti ávarpaði heimsbyggðina frá Hvíta húsinu í gærkvöldi og sagðist Obama hafa rætt við Mubarak í síma í gærkvöldi, sem gerði sér grein fyrir að núverandi ástand gæti ekki haldið áfram. Enn eru tugþúsundir manna í miborg kairó, lang flestir andstæðingar forsetans og átök halda áfram milli þeirra og stuðningsmanna forsetans. En nú er klukkan að verða níu að kveldi í Egyptalandi.
Mest lesið Þakklát fyrir þrjósku hundsins Innlent Gætu þurft að loka Fjölskyldulandi Innlent Einbeitti sér alfarið að Svedda Tönn Innlent „Ég held að það þurfi að koma böndum á þetta“ Innlent „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Erlent Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Erlent Milla hætt hjá Willum Innlent Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Erlent „Þetta gæti bara byrjað hvenær sem er“ Innlent Íbúi á sjötugsaldri lést í brunanum við Amtmannsstíg Innlent Fleiri fréttir Erlendir þrjótar reynast að brjótast inn til Harris og Trump „Hélt ég væri að fara að drepast. Þú heyrir i sprengjunni koma“ Forsætisráðherra Japan sækist ekki eftir endurkjöri Handtökuskipun gefin út vegna Nord Stream skemmdarverkanna Hamas segjast ekki munu senda fulltrúa til viðræðna á morgun Hafa ekki í hyggju að halda Kúrsk Tugir þúsunda létust af völdum hita í Evrópu Mannréttindastjóri gagnrýnir óhóflega beitingu valds í Venesúela Gera sér ekki mat úr lekanum úr framboði Trump Netanyahu og Gallant í hár saman undir hótunum frá Íran Maður ákærður fyrir stunguárás á ellefu ára stúlku í Lundúnum í gær Fyrsta dauðfallið staðfest í eldunum á Grikklandi Fóru um víðan völl í samtali á X í gær Segjast hafa lagt undir sig um það bil þúsund ferkílómetra Pútín hótar hefndum fyrir innrásina í Kúrsk Starfsmaður Marel lést í flugslysinu í Brasilíu Stúlka og kona stungnar á Leicester torgi Dró framboðið til baka til að forðast innanflokkserjur Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki týpu 1 Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Miklir eldar í grennd við Aþenu USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Búið að slökkva eldinn í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Úkraínumenn vilji valda upplausn Úkraínski herinn kominn um 30 kílómetra inn í Rússland Segir Írani hafa hakkað tölvupósta framboðsins Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Sextíu og einn látinn eftir flugslysið í Brasilíu Gerðu loftárás á skóla í nótt Sjá meira